Fotbolti.net
09.08.16 - 21:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Harpa Þorsteins: Mikið pepp fyrir leik að fá þessi verðlaun

Auglýsing
Harpa (hér til hægri) var öflug í kvöld

Harpa (hér til hægri) var öflug í kvöld

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Hertz
„Ég fékk hérna Skittles pakka,\" sagði Harpa Þorsteinsdóttir hæstánægð eftir 3-1 sigur Stjörnunnar gegn Selfossi í kvöld. Harpa skoraði tvisvar og fékk því verðlaun eftir leik. „Þetta var svo mikið pepp fyrir leik að fá þessi verðlaun.\"

Harpa var nokkuð sátt með leikinn, en að hennar mati voru færin sem lið Stjörnunnar fékk í leiknum ekki nægilega vel nýtt.
„Mér fannst við yfirspila þær í fyrri hálfleik og við skoruðum tvö mörk, vorum mjög ógnandi fram á við og mér fannst við spila virkilega vel. Svo hleypum við þeim fullmikið inn í leikinn og fórum að vera sloppy á sendingar og vera of langt frá mönnum og þá er okkur refsað. Sem betur fer þá náðum við að koma í veg fyrir að það yrði stærri refsing en þetta, en mér fannst við samt ekki nýta færin nægilega vel.\"

Stjarnan og Breiðablik eru jöfn á toppi Pepsi-deildar kvenna, en Stjarnan á þó leik til góða á Blika. Baráttan er virkilega hörð um Íslandsmeistaratitilinn þetta árið og því er Harpa sammála.

„Þetta er gífurlega hörð barátta og hver leikur sem við förum í er algjör úrslitaleikur og það skiptir ekki máli hvort það sé eitt af botnliðunum eða toppliðunum. Þetta eru allt gríðarlega erfiðir mikilvægir leikir, þannig að skiptir miklu máli að sigla svona leik í höfn.\"

Viðtalið við Hörpu má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.