Gregg Ryder: Besti varnarsinnaði miðjumaður deildarinnar
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gregg var sáttur með að sækja þrjú stig á sinn gamla heimavöll eftir 3-1 sigur gegn Þrótturum í Laugardalnum fyrr í kvöld.
Var Gregg sáttur með að vinna gegn sínum gömlu félögum?
„Þrjú stig eru það sem skiptir mestu máli og við náðum í þrjú stig í dag.''
Varstu sáttur með frammistöðu þinna manna?
„Við vorum flottir í fyrri hálfleik, rosalega góðir og áræðnir á markið, í seinni hálfleik skoruðum við gott mark en vörðumst rosalega vel, við vorum í sömu stöðu og gegn Víking Ólafsvík en núna kláruðum við leikinn rosalega vel.''
Þetta var besti leikur Alvaro eftir meiðslin, hversu mikilvægt er að hann sé að finna sitt gamla form?
„Hann er besti framherjinn í deildinni, og hvenar hann myndi fara að skora mörk var bara tímaspursmál.''
Alvaro fór útaf eftir tæklingu, er það eitthvað alvarlegt?
„Nei hann meiddist ekki, hann var bara búinn á því eftir að hafa keyrt sig út bæði varnarlega og sóknarlega, ég hefði haldið honum lengur inná ef ég gæti en hann vildi koma útaf.''
Orri Sigurjóns fór sömuleiðis útaf eftir hnjask, er hann meiddur?
„Nei hann er bara leikmaður sem var að koma til baka úr meiðslum og þarf að koma sér varlega inn í hlutina, ekkert alvarlegt.''
Orri er að mati fréttaritara vanmetnasti leikmaður deildarinnar og er lítið í umræðunni þegar talað er um Þórsliðið, hvað gefur Orri þessu Þórsliði?
„Orri er mjög mikilvægur, hann er besti varnarsinnaði miðjumaður deildarinnar og væri örugglega einn sá besti í Pepsi Max deildinni líka, hann fær ekki það hrós sem hann á skilið og í dag spilaði hann ekki í 100% standi en var samt yfirburðar maður á vellinum, hann er frábær fótboltamaður, hvernig hann les leikinn og taktískt mjög góður.''
Þór er að elta Fjölni, hvernig lýst Gregg á framhaldið?
„Við þurfum bara að passa upp á okkur sjálfa, þetta er undir okkur sjálfum komið og við þurftum sigur í dag og ætlum bara að reyna að halda áfram að vinna leiki.''