Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 09. september 2020 18:30
Victor Pálsson
Falcao staðfestir hvert hann fer næst
Mynd: Getty Images
Framherjinn Radamel Falcao ætlar að ganga í raðir Inter Miami í Bandaríkjunum en hann sjálfur hefur staðfest þetta.

Falcao leikur í dag með Galatasaray í Tyrklandi og á tvö ár eftir af sínum samningi. Hann ætlar að fara þegar honum lýkur.

Inter Miami er í eigu goðsagnarinnar David Beckham og er að leika sitt fyrsta tímabil í MLS-deildinni, efstu deild Bandaríkjanna.

„Ég á tvö ár eftir af samningnum við Galatasaray og ég vil spila fyrir Inter Miami því þar eru margir Kólumbíumenn og það minnir mig á heimalandið," sagði Falcao.

Falcao er 34 ára gamall íd ag en hann á að baki leik fyrir lið á borð við Atletico Madrid, Manchester United og Chelsea.

Athugasemdir
banner
banner
banner