Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 09. september 2022 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Segir Dembele mikilvægari en Lewandowski
Mynd: EPA

Martin Braithwaite rifti samningi sínum við Barcelona á dögunum eftir tveggja og hálfs árs veru hjá félaginu. Hann skrifaði síðan undir samning við erkifjendurna í Espanyol.


Þar skoraði hann sitt fyrsta mark í sínum fyrsta leik fyrir félagið þremur dögum síðar í 1-0 sigri á Athletic Bilbao.

Hann var í viðtali hjá Mundo Deportivo þar sem hann ræddi um sína fyrrum félaga. Hann hrósaði Ousmane Dembele í hástert.

„Hann gerir gæfumuninn frekar en Lewandowski. Dembele er frábær einstaklingur, ég kann vel við hann. Hann er með sturlaða hæfileika, ég hef ekki séð neitt þessu líkt. Messi er eitthvað annað en ég hef ekki séð neinn eins og Dembele," sagði Braithwaite.

Lewandowski gekk til liðs við Barcelona í sumar frá Bayern Munchen en hann hefur skorað 8 mörk í fyrstu fimm leikjum sínum með liðinu. Dembele er með eitt mark og tvær stoðsendingar í fjórum leikjum.


Athugasemdir
banner
banner
banner