Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 09. október 2021 22:30
Victor Pálsson
Pelle gefur í skyn að hann myndi snúa aftur
Mynd: Getty Images
Graziano Pelle, fyrrum leikmaður Southampton, setti inn nokkuð athyglisvverða færslu á Instagram síðu sína fyrir helgi.

Pelle er án félags þessa stundina en hann lék síðast fyrir Parma á Ítalíu þar sem mörkin voru aðeins tvö í 14 leikjum.

Framherjinn er fyrrum leikmaður Southampton og birti myndband af sjálfum sér skora mark í treyju liðsins fyrir nokkrum árum.

Pelle grínaðist með að Southampton þyrfti á framherja að halda en einhverjir myndu eflaust taka hann aftur til félagsins.

Pelle er 36 ára gamall í dag en hann lék með Southampton frá 2014 til 2016 við góðan orðstír og fór svo til Kína.

Nú er spurning hvort Southampton gæti reynt við leikmanninn enda er hann laus allra mála og má semja strax.


Athugasemdir
banner
banner
banner