Fotbolti.net
09.10.23 - 16:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Úlfur verður áfram með Fjölni - Búið að ræða við samningslausu leikmennina

Ætlar sér upp með liðið.

Ætlar sér upp með liðið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Úlfur Arnar Jökulsson, þjálfari Fjölnis, verður áfram með liðið. Þetta staðfesti Björgvin Jón Bjarnason, formaður knattspyrnudeildar Fjölnis, í samtali við Fótbolta.net í dag.

Úlfur hefur verið þjálfari Fjölnis undanfarin tvö ár, tímabilið 2022 endaði Fjölnir í 4. sæti og í ár endaði liðið í 3. sæti. Liðið tapaði í undanúrslitum úrslitakeppninnar fyrir Vestra sem endaði á því að vinna úrslitakeppnina og tryggði sér með því sæti í Bestu deildinni.
Björgvin var einnig spurður út í þá fjóra leikmenn sem eru að renna út á samningi hjá Fjölni samkvæmt heimasíðu KSÍ. Það eru þeir Bjarni Þór Hafstein, Guðmundur Karl Guðmundsson, Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson og Kristófer Dagur Arnarsson. Björgvin segir að búið sé að ræða við alla fjóra um áframhaldandi veru hjá félaginu.

Júlíus Már Júlíusson átti gott tímabil með Fjölni og var hann í íslenska slúðurpakkanum sagður líta í kringum sig. Björgvin segir að ekkert tilboð hafi borist í Júlíus sem er samningsbundinn félaginu.

Ertu búinn að fá tilboð í einhvern leikmann í hópnum?

„Nei, engan. Þessir strákar ætla að spila í úrvalsdeildinni 2025," sagði Björgvin.

Dofri Snorrason leggur skóna á hilluna (Staðfest)
TENGT EFNI

Dofri Snorrason leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.