Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 09. nóvember 2020 11:47
Magnús Már Einarsson
Engir áhorfendur á leik Ungverjalands og Íslands (Staðfest)
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Engir áhorfendur verða á leik Ungverjalands og Íslands í umspili um sæti á EM á fimmtudag. Ungverjar höfðu stefnt á að hafa 20 þúsund áhorfendur á leiknum en nú er ljóst að svo verður ekki.

Vikt­or Or­ban, forseti Ungverjalands, tilkynnti harðari aðgerðir í dag vegna kórónuveirunnar. Engir áhorfendur verða leyfðir á íþróttaleikjum næsta mánuðinn.

Svakaleg uppsveifla hefur verið í fjölgun smita og dauðafalla í Ungverjalandi síðustu vikur en stjórnvöld hafa verið gagnrýnd harðlega fyrir að leyfa áhorfendur á íþróttaviðburðum þar í landi.

Kórónaveiran heldur áfram að hafa gríðarleg áhrif á fótboltann en margir óvissuþættir eru í gangi varðandi komandi landsleiki Íslands.

Arnór Ingvi Traustason verður ekki með íslenska landsliðinu í leiknum eftir að liðsfélagi hans hjá Malmö greindist með kórónuveiruna.

Einn besti leikmaður Ungverja, Dominik Szoboszlai, er í úrvinnslusóttkví eftir að liðsfélagi hans greindist með veiruna.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner