Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 09. desember 2022 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Everton íhugar að kalla Branthwaite til baka úr láni
Mynd: Everton

Jarrod Branthwaite varnarmaður Everton var sendur á lán til hollenska liðsins PSV fyrir tímabilið en Everton íhugar að taka hann til baka í janúar.


Þessi tvítugi miðvörður hefur leikið 12 leiki fyrir PSV í öllum keppnum á þessari leiktíð.

Þjálfarateymi Everton metur hann mikils en hann hefur þegar leikið 13 leiki fyrir enska félagið á ferlinum. Hann er hins vegar á eftir  Ben Godfrey, Michael Keane, Mason Holgate og Yerry Mina í goggunarröðinni.

Branthwaite gekk til liðs við Everton frá Carlisle í janúar árið 2020 fyrir eina milljón punda.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner