Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 10. janúar 2021 21:10
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu atvikin: Marine skaut í slá - Dele Alli fór í kollhnís
Dele Alli ætlar að ryðja sér leið aftur inn í byrjunarliðið hjá Tottenham.
Dele Alli ætlar að ryðja sér leið aftur inn í byrjunarliðið hjá Tottenham.
Mynd: Getty Images
Viðureign Tottenham gegn Marine var að ljúka í enska FA-bikarnum þar sem sterkt lið Tottenham skoraði fimm mörk gegn utandeildarliðinu.

Leikurinn fór skemmtilega af stað þar sem Tottenham tók forystuna en heimamenn í Marine komust hársbreidd frá því að jafna skömmu síðar, þegar flott langskot hafnaði í slánni.

Joe Hart kom engum vörnum við á milli stanganna og var Neil Kengni óheppinn að skora ekki.

Síðar í leiknum átti skemmtilegt atvik sér stað þegar Dele Alli missti jafnvægið fyrir framan varamannabekk Tottenham og endaði í kollhnís. Þetta uppskár hlátrasköll frá Son Heung-min og Gareth Bale sem gerðu grín að honum af bekknum.

Sláarskot Kengni má sjá hér.


Athugasemdir
banner