Kvaratskhelia orðaður við Man Utd og Liverpool - Moyes fyrsti kostur Everton - Man Utd blandar sér í baráttuna um Mbeumo
   fös 10. janúar 2025 12:00
Elvar Geir Magnússon
Aldís Ylfa ráðin þjálfari yngri landsliða kvenna
Aldís Ylfa í leik með ÍA 2017.
Aldís Ylfa í leik með ÍA 2017.
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Aldís Ylfa Heimisdóttir hefur verið ráðin þjálfari U17 og U16 kvenna en KSÍ hefur tilkynnt þetta.

Aldís, sem er með KSÍ A gráðu í þjálfun og meistaragráðu í verkefnastjórnun, var aðstoðarþjálfari í yngri landsliðum kvenna árin 2021-2023 (U15-U16-U17) ásamt því að starfa við Hæfileikamótun KSÍ.

Þá starfaði hún sem þjálfari hjá ÍA í rúman áratug þar sem hún þjálfaði m.a. 2. flokk kvenna ásamt því að halda utan um kvennastarfið hjá KFÍA. Að auki var hún aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá ÍA í þrjú ár.

Sem leikmaður lék Aldís 72 leiki með meistaraflokki ÍA og skoraði átta mörk, og einnig hefur hún leikið tvisvar með U19 landsliði Íslands og skorað eitt mark.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner