Arsenal og Tottenham hafa áhuga á Kean - Man Utd sýndi Fermín López áhuga - Jota orðaður við Arsenal
   mán 10. febrúar 2025 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Aston Villa krækir í efnilegan Tyrkja (Staðfest)
Mynd: Aston Villa
Aston Villa hefur tryggt sér krafta Yasin Özcan en hann kemur til félagsins í sumar. Kaupin eru frágengin en þar sem félagaskiptaglugginn er ekki opinn þá kemur Özcan ekki fyrr en í sumar.

Özcan er tyrkneskur unglingalandsliðsmaður sem kemur frá Kasimpasa í heimalandinu.

Hann er 18 ára varnarmaður sem verður 19 ára í apríl. Hann getur bæði spilað sem miðvörður og vinstri bakvörður. Þrátt fyrir að vera ekki orðinn 19 ára hefur hann verið í U21 landsliðinu síðan árið 2023.

Hann er á sínu þriðja ári sem hluti af leikmannahópi Kasimpasa í tyrknesku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner