Fotbolti.net
10.02.25 - 12:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jói útherji

Bebe til Ibiza (Staðfest)

Bebe er fyrrum leikmaður Manchester United.

Bebe er fyrrum leikmaður Manchester United.

Canon

Mynd: Getty Images

Bebe, fyrrum leikmaður Manchester United, hefur samið við spænska félagið Ibiza. Hann mun núna spila á partíeyjunni frægu.

Bebe, sem er orðinn 34 ára, gekk í raðir Man Utd árið 2010. Það er fræg saga að hann sé eini leikmaðurinn sem Sir Alex Ferguson horfði ekki á spila áður en hann keypti hann. Það var Carlos Queiroz, fyrrum aðstoðarmaður Ferguson, sem mældi með Bebe og Ferguson ákvað að treysta því.
Bebe heillaði ekki hjá Man Utd en hann hefur flakkað mikið eftir að hann yfirgaf enska félagið.

Hann er núna að semja við sitt sjötta félag á Spáni en hann hefur einnig spilað með Cordóba, Rayo Vallecano, Eibar, Zaragoza og Racing Ferrol þar í landi.

Ibiza leikur sem stendur í þriðju efstu deild á Spáni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.