Arsenal og Tottenham hafa áhuga á Kean - Man Utd sýndi Fermín López áhuga - Jota orðaður við Arsenal
   mán 10. febrúar 2025 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heldur áfram að sýna af hverju það var rétt hjá Man Utd að losa sig við hann
Jadon Sancho.
Jadon Sancho.
Mynd: Getty Images
Jadon Sancho, leikmaður Chelsea, hefur vakið reiði meðal stuðningsmanna Manchester United vegna ummæla sem hann lét falla á samfélagsmiðlum í gær.

Sancho tjáði sig undir mynd sem Marcus Rashford, hans fyrrum liðsfélagi hjá Man Utd, birti á Instagram.

„Frelsi," skrifaði Sancho einfaldlega við myndina en Rashford var að spila sinn fyrsta leik fyrir Aston Villa í gær.

Sancho spilaði með Rashford hjá Man Utd en olli þar gríðarlegum vonbrigðum. Hann var lánaður til Chelsea síðasta sumar og þarf Lundúnafélagið að kaupa hann næsta sumar. Sancho byrjaði vel með Chelsea en það hefur hægst verulega á honum.

Rashford hefur átt erfitt uppdráttar en hefur núna fengið „frelsi" að mati Sancho.

Samuel Luckhurst, blaðamaður Manchester Evening News, skrifaði í morgun grein um Sancho þar sem aðalatriðið er það að leikmaðurinn heldur áfram að sýna af hverju það var rétt hjá United að losa sig við hann; Sancho átti aldrei heima í United.



Athugasemdir
banner
banner
banner