Fotbolti.net
10.06.20 - 11:10
Fótbolti.net

Líklegt byrjunarlið Vals í sumar

Haukur Páll Sigurðsson, fyrirliði Vals.

Haukur Páll Sigurðsson, fyrirliði Vals.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fótbolti.net spáir Val 1. sæti í Pepsi Max-deildinni í sumar. Valsmenn stóðu alls ekki undir væntingum í fyrra en liðið mætir ríkjandi Íslandsmeisturum í KR í opnunarleik deildarinnar á laugardaginn. Fótbolti.net skoðar í dag líklegt byrjunarlið Valsara fyrir sumarið.


Heimir Guðjónsson er kominn aftur í íslenska boltann og hefur þrusuflotta breidd í næstum öllum stöðum vallarins. Í markinu stendur landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson.

Rasmus Christiansen hefur verið hrikalega öflugur í undirbúningsleikjunum og virðist vera fyrsti miðvörður á blað. Orri Sigurður Ómarsson hefur myndað miðvarðaparið með þeim danska en Eiður Aron Sigurbjörnsson hefur mátt sætta sig við bekkjarsetu.

Birkir Már Sævarsson er hægri bakvörður og Færeyingurinn Magnus Egilsson, sem Heimir tók með sér frá HB, er vinstra megin. Þá hefur hinn ungi Valgeir Lunddal Friðriksson leikið mjög vel í æfingaleikjunum að undanförnu.

Á miðjunni eru Sebastian Hedlund og fyrirliðinn Haukur Páll Sigurðsson. Fyrir framan þá í 'tíunni' er svo Sigurður Egill Lárusson í nýju hlutverki en hann hefur aðallega spilað á vængnum.

Aron Bjarnason kom frá Ungverjalandi og er á öðrum vængnum en Kaj Leo í Bartalsstovu er hinumegin. Fremstur er svo Daninn Patrick Pedersen, af mörgum talinn besti leikmaður deildarinnar. Valur hefur engan hreinræktaðan varamann í fremstu stöðu vallarins en leit stendur yfir.

Breidd Vals í öðrum stöðum sést vel á því að auk Eiðs eru Kristinn Freyr Sigurðsson, Andri Adolphsson, Ólafur Karl Finsen, Lasse Petry. Einar Karl Ingvarsson og Birkir Heimisson ekki í líklegu byrjunarliði.

Sjá einnig:
Spá Fótbolta.net - 1. sæti: Valur
Rasmus Christiansen.

Rasmus Christiansen.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.