Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 10. júní 2026 15:01
Kári Snorrason
Messi leið frábærlega gegn Íslandi - Elsti markaskorari í sögu Argentínu
Ætlar sér að verja heimsmeistaratitilinn.
Ætlar sér að verja heimsmeistaratitilinn.
Mynd: EPA
Lionel Messi skoraði sitt 117 landsliðsmark fyrir Argentínu er hann skoraði annað mark liðsins úr vítaspyrnu gegn Íslandi í vináttuleik nótt.

Með marki sínu varð hann elsti markaskorari í sögu argentíska landsliðsins og bætti þar með 69 ára gamalt met Angel Labruna.

Lestu um leikinn: Argentína 3 -  0 Ísland

Messi, sem verður 39 ára í júlí, var hress á blaðamannafundi eftir leik og sagði skrokkinn í góðu standi en hann hefur verið að stíga upp úr smávægilegum meiðslum.

„Ég var spenntur að spila í fyrsta sinn í smá tíma þar sem ég hafði verið tæpur. Ég er ánægður, nýt hverrar stundar og er spenntur eins og alltaf.

Mér leið frábærlega (á vellinum). Ég var spenntur að koma inn á og hrista af mér óttann sem fylgir því að stíga upp úr meiðslum. Við höfum viku til að koma öllum í stand og gera hópinn kláran fyrir fyrsta leikinn,“
sagði Messi eftir leik.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner
banner