Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 10. ágúst 2020 17:00
Elvar Geir Magnússon
Nýr leikmaður Barcelona með mesta sköpunarmáttinn í Portúgal
Francisco Trincao.
Francisco Trincao.
Mynd: Getty Images
Francisco Trincao hefur verið verðlaunaður sem sá leikmaður í portúgölsku deildinni sem er með mestan sköpunarmátt.

Þessi 20 ára leikmaður skoraði átta deildarmörk, átti sex stoðsendingar, krækti í tvær vítaspyrnur og átti lykilsendingar í fimmtán öðrum mörkum fyrir Braga.

Í janúarglugganum var tilkynnt að Barcelona hefði tryggt sér Trincao en hann kláraði þó tímabilið hjá Braga.

Hann er fjölhæfur sóknarleikmaður, vinstri fóturinn er sterkari en hann er með mikla tæknilega getu og fær um að spila á báðum vængjum.

Trincao mun hitta nýja liðsfélaga sína í Barcelona í þessum mánuði. Mögulegt er talið að hann verði lánaður fyrir næsta tímabil svo hann aðlagist spænska boltanum.
Athugasemdir
banner
banner
banner