Fotbolti.net
10.08.26 - 23:06
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Eiður sér ekki eftir neinu: Væri ekki í KR nema fyrir Ými

Eiður sér ekki eftir neinu: Væri ekki í KR nema fyrir Ými
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Gauti Sæbjörnsson skoraði tvennu þegar KR vann Fram 5-2 í Bestu deildinni í kvöld. Hann hefur skorað fimm mörk í síðustu fjórum leikjum.

Eiður (1999) er uppalinn hjá HK og spilaði tíu leiki með liðinu og skoraði eitt mark frá 2016-2018. Hann fór yfir til Ýmis og fór hamförum í 3. og 4. deild. Hann skoraði 71 mark í 60 leikjum.
Óskar Hrafn: Hann hefði klárlega getað farið erlendis
TENGT EFNI

Óskar Hrafn: Hann hefði klárlega getað farið erlendis

Hann gekk til liðs við KR frá HK í fyrra og skoraði 14 mörk í 23 leikjum í Bestu deildinni. Hann hefur skorað 11 mörk í 17 leikjum í sumar. Eiður var í viðtali við Fótbolta.net í kvöld og var spurður að því hvort hann sjái eftir skrefinu í Ými.

„Nei, það voru frábærir tímar. Ég held að ég væri ekki hér í dag nema það væri fyrir þetta skref. Þetta var áhugavert hliðarskref en skemmtilegt," sagði Eiður.

„Ég sé ekkert eftir þessu. Ég er ótrúlega ánægður hvernig þetta spilaðist út."

Eiður gefur Galdri markið - „Ekkert mál að skora í svona liði"

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.