Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 10. september 2019 17:31
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Elbasan, Albanía
Byrjunarlið Íslands: Jón Daði frammi í 4-5-1
Icelandair
Jón Daði byrjar frammi.
Jón Daði byrjar frammi.
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Kolbeinn byrjar á bekknum. Hann æfði með umbúðir á hnénu í gær.
Kolbeinn byrjar á bekknum. Hann æfði með umbúðir á hnénu í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið Íslands fyrir leikinn gegn Albaníu í Elbasan er klárt.

Erik Hamren og Freyr Alexandersson gera tvær breytingar. Inn í liðið koma Rúnar Már Sigurjónsson og Emil Hallfreðsson. Út fara Kolbeinn Sigþórsson og Arnór Ingvi Traustason. Það er spurning hvernig staðan er á Kolbeini, en hann æfði með umbúðir á hnénu í gær.

Leikurinn hefst klukkan 18:45 að íslenskum tíma og verður hann í beinni textalýsingu á Fótbolta.net.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu.

Byrjunarlið Íslands:
1. Hannes Þór Halldórsson
2. Hjörtur Hermannsson
6. Ragnar Sigurðsson
8. Birkir Bjarnason
10. Gylfi Þór Sigurðsson
14. Kári Árnason
16. Rúnar Már Sigurjónsson
17. Aron Einar Gunnarsson (f)
20. Emil Hallfreðsson
22. Jón Daði Böðvarsson
23. Ari Freyr Skúlason
Athugasemdir
banner