Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
   lau 10. september 2022 16:50
Haraldur Örn Haraldsson
Efnilegastur 2022: Markakóngurinn markmiðið núna
Kjartan Kári Halldórsson (Grótta)
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Kjartan Kári Halldórsson leikmaður Gróttu var ánægður með frammistöðu liðsins í dag þar sem þeir unni 1-0 sigur á Fjölni í Grafarvoginum.


Lestu um leikinn: Fjölnir 0 -  1 Grótta

„Þetta var bara að vinna á baráttunni, við vorum að berjast allan leikinn og svo beittum við bara skyndisóknum og það bara virkaði. Sætur 1-0 sigur."

Grótta er í 3. sæti eftir leikinn í dag og þó þeir geta ekki farið upp um deild þá er það stefnan að enda í þessu sæti.

„Já væntanlega, það er það sem við ætlum að reyna að ná 3. sætinu og bara því besta sem við getum. Það er einn leikur eftir og við verðum að klára það vel."

Tilkynnt var í morgun að Kjartan Kári var valinn efnilegasti leikmaður deildarinnar. Hann er jafnmarkahæstur þegar einn leikur er eftir og hann stefnir á markakóngs titilinn.

„Já það er bara markmiðið núna en væntanlega hugsa ég bara fyrst og fremst um liðið og að okkur gangi vel, svo reynir maður alltaf að skora sem flest mörkin og leggja upp."

Kjartan hefur mikið verið orðaður frá félaginu og það verður að teljast ansi líklegt að hann spilar ekki fyrir Gróttu næsta sumar. Talið er líklegt að hann spili í Bestu deildinni á næsta ári.

„Það kemur bara allt í ljós. Ég er bara að einbeita mér og það er einn leikur eftir og ég ætla að klára það með stæl."

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.


Athugasemdir
banner
banner