Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 10. október 2021 09:00
Victor Pálsson
Alonso hefur fulla trú á Saul
Mynd: EPA
Marcos Alonso, leikmaður Chelsea, hefur fulla trú á landa sínum Saul Niguez sem kom til félagsins í sumar.

Saul hefur ekki byrjað mjög vel með sínu nýja liði og var tekinn af velli í fyrsta leik þar sem frammistaðan var ekki góð.

Alonso segir að Saul sé enn að aðlagast Englandi en hann hafði allan sinn feril leikið með Atletico Madrid.

Saul var lánaður til Chelsea sem getur svo keypt hann endanlega næsta sumar.

„Hann er nýliði. Hann er að aðlagast en hann er frábær leikmaður og verður mjög góður fyrir okkur,“ sagði Alonso.

„Hann sýndi eigin gæði hjá Atletico Madrid og það er ekki hægt að efast um það sem hann hefur afrekað á sínum ferli.“
Athugasemdir
banner
banner
banner