Fotbolti.net
11.01.22 - 13:51
Elvar Geir Magnússon

Pálmi Rafn ráðinn íþróttastjóri KR

Pálmi Rafn Pálmason.

Pálmi Rafn Pálmason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Pálmi Rafn Pálmason, leikmaður KR, hefur verið ráðinn til starfa sem íþróttastjóri félagsins. Pálmi starfaði áður hjá fyrirtækjaþjónustu VÍS.

Pálmi, sem er 37 ára, hefur spilað með KR síðan 2015 en í vetur framlengdi hann leikmannasamningi sínum við félagið um eitt ár.
Fram kemur á heimasíðu KR að Pálmi hefur yfirumsjón með öllu faglegu starfi KR, umsjón með fræðslu og forvarnarstarfi ásamt því að vinna náið með deildum félagsins að áframhaldandi uppbyggingu þeirra, skipulagi og framkvæmd.

„Það eru mjög spennandi tímar framundan hjá KR og ég get ekki beðið eftir því að taka til hendinni og vera þáttur í frekari uppbyggingu í félaginu," segir Pálmi.

KR hefur einnig tilkynnt að Þórunn Hilda Jónasdóttir hefur verið ráðin sem markaðs- og viðburðastjóri KR. Hún kemur frá Háskólanum í Reykjavík þar sem hún starfaði sem viðburðastjóri á markaðssviði.

„Ég er virkilega spennt að koma inn í KR og taka þátt því öfluga starfi sem hér fer fram," segir Þórunn Hilda við heimasíðu KR.

Hennar hlutverk hjá félaginu er að þróa og viðhalda ímynd og vörumerki KR, afla nýrra markaðstækifæra, ritstýra og hafa umsjón með helstu miðlum félagsins sem og viðburðastjórnun á stærri viðburðum, ásamt því að vera öllum deildum og foreldraráðum innanhandar varðandi fjáraflanir.

Heimild: Heimasíða KR

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.