Síðustu tveir leikir 16-liða úrslita FA-bikarsins verða í kvöld, Úlfarnir taka á móti Southampton og Chelsea heimsækir Barnsley.
Eftir leik Wolves og Southampton verður dregið í 8-liða úrslitin, um klukkan 19:45 í kvöld.
Everton komst áfram með sigri gegn Tottenham í markaleik og Manchester United með sigurmarki Scott McTominay gegn West Ham í framlengingu á þriðjudaginn.

Liðin sem eru komin áfram og þeirra númer á kúlunum:
1) Bournemouth
2) Manchester United
3) Sheffield United
4) Wolverhampton Wanderers eða Southampton
5) Barnsley eða Chelsea
6) Everton
7) Manchester City
8) Leicester City
Hvenær verða 8-liða úrslitin?
Helgina í kringum laugardaginn 20. mars.
Undanúrslitin verða tæplega mánuði síðar og úrslitaleikinn laugardaginn 15. maí.
Athugasemdir