11.05.21 - 18:53
Ívan Guðjón Baldursson
England: United tapaði á Trafford og City varð Englandsmeistari

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Man Utd 1 - 2 Leicester
0-1 Luke Thomas ('10)
1-1 Mason Greenwood ('15)
1-2 Caglar Soyncu ('66)
0-1 Luke Thomas ('10)
1-1 Mason Greenwood ('15)
1-2 Caglar Soyncu ('66)
Manchester United tók á móti Leicester í fyrri leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni.
Rauðu djöflarnir mættu til leiks með óvanalegt byrjunarlið vegna fjölda leikja á skömmum tíma. Ole Gunnar Solskjær gerði tíu breytingar á byrjunarliðinu.
Leikurinn fór fjörlega af stað þar sem Luke Thomas skoraði glæsilegt mark strax á tíundu mínútu, eftir góðan bolta frá Youri Tielemans.
Það tók Mason Greenwood aðeins fimm mínútur að jafna, hann gerði vel að skapa sér pláss í vítateignum eftir sendingu frá Amad Traore. Táningarnir tengdu vel saman þarna en restin af hálfleiknum var nokkuð bragðdauf.
Leicester spilaði betur í síðari hálfleik og skoraði Caglar Soyuncu á 66. mínútu, um leið og Edinson Cavani og Marcus Rashford var skipt inn á völlinn. Soyuncu skoraði með skalla eftir hornspyrnu.
Rauðu djöflarnir reyndu að jafna en tókst ekki og lokatölur urðu 1-2 sem þýðir að nágrannarnir í Manchester City eru orðnir Englandsmeistarar í fimmta sinn á síðasta áratugi.
Úrslitin þýða einnig að Leicester er í frábærri stöðu í Meistaradeildarbaráttunni.
Til gamans má geta að þetta var fyrsti sigur Leicester á Old Trafford síðan 1998.

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 9 | +9 | 24 |
| 2 | Man City | 9 | +10 | 21 |
| 3 | Brighton | 9 | +17 | 19 |
| 4 | Chelsea | 9 | +4 | 16 |
| 5 | Liverpool | 9 | +2 | 15 |
| 6 | Brentford | 9 | +7 | 14 |
| 7 | Everton | 9 | 0 | 13 |
| 8 | Bournemouth | 9 | +1 | 12 |
| 9 | Tottenham | 9 | 0 | 12 |
| 10 | Aston Villa | 9 | -3 | 12 |
| 11 | Hull City | 9 | +1 | 11 |
| 12 | Leeds | 9 | +1 | 11 |
| 13 | Newcastle | 9 | -3 | 11 |
| 14 | Ipswich Town | 9 | -4 | 11 |
| 15 | Fulham | 9 | -2 | 9 |
| 16 | Coventry | 9 | -7 | 9 |
| 17 | Man Utd | 9 | -5 | 7 |
| 18 | Crystal Palace | 9 | -12 | 7 |
| 19 | Nott. Forest | 9 | -6 | 6 |
| 20 | Sunderland | 9 | -10 | 5 |