Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 11. maí 2022 19:48
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Aftur er Leeds í erfiðri stöðu - Skelfilegt brot hjá James
Daniel James.
Daniel James.
Mynd: Heimasíða Leeds
Leeds er ekkert í sérlega góðum málum þessa stundina og er góður möguleiki á að liðið muni falla úr ensku úrvalsdeildinni áður en þessi mánuður er á enda.

Leeds er núna að spila við Chelsea og er staðan 0-1 þegar búið er að flauta til hálfleiks.

Það verður erfitt fyrir Leeds að fá eitthvað úr þessum leik því þeir eru einum færri eftir ansi groddaralega tæklingu Daniel James sem má sjá með því að smella hérna. Hann fékk rautt spjald fyrir hana.

Þetta er annar leikurinn í röð þar sem liðið missir mann af velli með rautt spjald í fyrri hálfleik. Á þessum tímapunkti er það bara afskaplega dýrt.

Nálgast nýtt met
Leikmenn Leeds hafa verið mjög mikið fyrir það að fá spjöld á þessari leiktíð og eru greinilega fastir fyrir. Liðið gæti sett met á næstu vikum með því að vera fyrsta liðið sem fer yfir 100 gul spjöld á einu tímabili í ensku úrvalsdeildinni. Liðið er núna búið að fá 97 gul spjöld á þessari leiktíð.


Athugasemdir
banner
banner
banner