Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 11. maí 2022 16:51
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mættur frá Ítalíu og gæti spilað næsta leik Fjölnis
Lengjudeildin
Í leik með Empoli í vetur.
Í leik með Empoli í vetur.
Mynd: Empoli
Lúkas Logi Heimisson er mættur frá Ítalíu og spilar með Fjölni í sumar. Hann er kominn með leikheimild með Fjölni og gæti spilað næsta leik liðsins.

Sá leikur er á föstudag og er viðureign Fjölnis gegn Þór á Extra vellinum í Grafarvogi.

Lúkas er nítján ára gamall sóknarþenkjandi leikmaður sem lék með ítalska félaginu Empoli í vetur.

Empoli er með forkaupsrétt á leikmanninum en sá réttur rennur út í lok júní.

Sjá einnig:
Lúkas Logi: Geggjað að fá að spila með rugl góðum Pinamonti og Cutrone

Athugasemdir
banner
banner