Fotbolti.net
11.06.17 - 21:42
Magnús Már Einarsson

Aron: Vorum í 4. sæti á 89. mínútu

Auglýsing
Aron í baráttunni í kvöld.

Aron í baráttunni í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
„Við þurftum á þessu að halda. Á 89. mínútu vorum við í fjórða sæti í þessum riðli,\" sagði Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði eftir dramatískan 1-0 sigur á Króatíu í kvöld.
„Við vissum að Króatia væri of langt í burtu ef þeir myndu vinna okkur en við vildum ekki segja það fyrir leikinn. Þetta hefur verið vinna og hark. Það voru langir vídjófundir í vikunni sem hafa stundum verið leiðinlegir en það margborgaði sig í dag. Þeir fengu ekki mörk færi og ég er stoltur af strákunum að hafa klárað þessi þrjú stig.\"

„Þetta var ekki skemmtilegasti leikur ever og við vorum aldrei að fara að hleypa leiknum út i það. Ef þetta hefði verið opinn leikur þá hefðu þeir unnið. Þeir eru með betri einstaklinga en við.\"

Aron er að fara að gifta sig um næstu helgi. „Það er kominn tími til. Ég er fullur tilhlökkunar. Þessi dagur verður eitthvað.\"

Hér að ofan má sja viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.