Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 11. júní 2021 07:30
Victor Pálsson
„Ronaldo er ennþá skrímsli"
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo er ennþá 'skrímsli' að sögn varnarmannsins Jose Fonte sem spilar með honum í portúgalska landsliðinu.

Ronaldo fagnaði nýlega 36 ára afmæli sínu en hann mun spila með Portúgal á EM sem hefst á morgun.

Ronaldo komst á blað í gær þegar Portúgal spilaði við Ísrael í æfingaleik og vann sannfærandi 4-0 sigur.

Það er oft rætt um aldur Ronaldo sem er líklega að spila sitt síðasta Evrópumeistaramót með þjóð sinni.

„Hann er okkar leiðtogi, okkar fyrirliði. Eins og venjulega þá undirbýr hann sig eins vel og hann getur," sagði Fonte.

„Hann er einn besti atvinnumaður heims. Tölfræðin talar sínu máli. Hann er enn á fullu og er enn skrímsli svo búist ekki við neinu en frábærri spilamennsku."
Athugasemdir
banner
banner
banner