Fotbolti.net
26.09.26 - 14:50
Kári Snorrason

Byrjunarlið Íslands - Stefán Teitur í hjarta varnarinnar

Byrjunarlið Íslands - Stefán Teitur í hjarta varnarinnar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Ísland og Eistland eigast við í fyrstu umferð riðilsins í C-deild Þjóðadeildarinnar. Flautað verður til leiks klukkan 16:00 og er um fyrsta leik af fjórum í landsleikjaglugganum er að ræða.

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari opinberað byrjunarlið sitt og er ein breyting frá líklegu byrjunarliði sem Fótbolti.net setti saman í gær.
Lestu um leikinn: Ísland 0 - 0 Eistland
Hákon Rafn Valdimarsson er á milli stanganna í fjarveru Elías Rafns Ólafssonar sem dró sig úr landsliðshópnum vegna meiðsla.

Þá byrjar Stefán Teitur Þórðarson í hafsentinum en við hlið hans er Daníel Leó Grétarsson. Mikael Egill Ellertsson byrjar í vinstri bakverði og hægra megin er Guðlaugur Victor Pálsson.

Á miðjunni eru Hákon Arnar Haraldsson og Ísak Bergmann Jóhannesson.

Albert Guðmundsson og Jón Dagur Þorsteinsson eru á sitthvorum köntunum og leiða Andri Lucas Guðjohnsen og Orri Steinn Óskarsson línuna.

Byrjunarlið Ísland

  • 12. Hákon Rafn Valdimarsson (m)
  • 3. Daníel Leó Grétarsson
  • 4. Guðlaugur Victor Pálsson
  • 7. Hákon Arnar Haraldsson
  • 8. Ísak Bergmann Jóhannesson
  • 9. Orri Steinn Óskarsson (f)
  • 16. Stefán Teitur Þórðarson
  • 19. Mikael Egill Ellertsson
  • 22. Andri Lucas Guðjohnsen
  • 11. Albert Guðmundsson
  • 20. Jón Dagur Þorsteinsson

Byrjunarlið Eistland

  • 1. Karl Hein (m)
  • 2. Marten Kuusk
  • 3. Maksim Paskotsi
  • 4. Mattias Käit
  • 6. Rasmus Peetson
  • 10. Kevor Palumets
  • 11. Karel Mustmaa
  • 11. Mihkel Ainsalu
  • 18. Karol Mets (f)
  • 19. Michael Schjønning-Larsen
  • 20. Markus Poom
Byrjunarlið Íslands - Stefán Teitur í hjarta varnarinnar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Byrjunarlið Íslands - Stefán Teitur í hjarta varnarinnar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.