Alex Bysouth íþróttafréttamaður breska ríkisútvarpsins setti saman topp tíu lista yfir mestu HM goðsagnir sögunnar. Heldur betur erfitt verkefni sem hann tók að sér þar.
„Í mínum huga er augljóst hvað nöfn eru á topp sex eða topp sjö, þó deila megi í hvaða röð þau eigi að koma. Erfiðast var að finna leikmenn til að fylla í hin sætin," segir Bysouth.
„Í mínum huga er augljóst hvað nöfn eru á topp sex eða topp sjö, þó deila megi í hvaða röð þau eigi að koma. Erfiðast var að finna leikmenn til að fylla í hin sætin," segir Bysouth.
Hann segir að erfitt hafi verið að skilja Þjóðverjann Miroslav Klose, markahæsta leikmann HM sögunnar, eftir utan listans.
Ekki er heldur pláss fyrir brasilísku goðsögnina Garrincha, ítalska sóknarmanninn Roberto Baggio eða Just Fontaine sem skoraði 13 mörk fyrir Frakka á mótinu 1958.
Hollendingurinn Johan Cruyff, Portúgalinn Eusebio og þýski markahrókurinn Gerd Muller komast heldur ekki á topp 10.
10. Sir Geoff Hurst, England, heimsmeistari 1966 - Geoff Hurst átti ekki að vera byrjunarliðsmaður á mótinu en stal senunni eftir meiðsli Jimmy Greaves. Skoraði sögufræga þrennu í úrslitaleiknum þegar England vann HM á heimavelli.
9. Cafu, Brasilía, heimsmeistari 1994 og 2002 - Bakvörðurinn magnaði kom af bekknum í úrslitaleiknum 1994, tapaði í úrslitaleiknum fjórum árum síðar og lyfti svo bikarnum sem fyrirliði 2002.
8. Paolo Rossi, Ítalía, heimsmeistari 1982 - Gulldrengur Ítalíu var maður keppninnar 1982. Þessi snjalli sóknarmaður var nýkominn úr tveggja ári banni fyrir að leyna hagræðingu úrslita. Rossi tók gullskóinn og gullknöttinn sem besti maður mótsins.
7. Zinedine Zidane, Frakkland, heimsmeistari 1998 - Blanda af mikilvægum mörkum, snilldartilþrifum og eftirminnilegum rauðum spjöldum. Ógleymanlegt þegar hann skallaði Materazzi 2006 og 1998 missti hann af tveimur leikjum eftir rautt spjald. Hann endaði það mót á að skora tvö mörk í úrslitaleiknum gegn Brasilíu þegar Frakkar urðu meistarar.
6. Kylian Mbappe, Frakkland, heimsmeistari 2018 - Saga sem enn er verið að skrifa. Geggjaður 2018 þegar hann var 19 ára og skoraði í úrslitaleiknum. Skoraði svo þrennu í úrslitaleiknum 2022 en það dugði ekki gegn Messi og félögum.
5. Franz Beckenbauer, Vestur-Þýskaland, heimsmeistari 1974 - Fyrirliði þegar Þjóðverjar unnu geggjað lið Hollendinga 1974. Frábær varnarmaður sem var gríðarlega öflugur í spilinu í Total Football boltanum. Varð síðan heimsmeistari sem þjálfari Þýskalands 1990.
4. Lionel Messi, Argentína, heimsmeistari 2022 - Honum tókst það! Skoraði tvö mörk í úrslitaleiknum klassíska gegn Frökkum. Skoraði alls sjö mörk á mótinu og leiddi Argentínu til síns fyrsta heimsmeistaratitils síðan Maradona gerði það 1986.
3. Ronaldo, Brasilía, heimsmeistari 1994 og 2002 - 17 ára gamall þegar hann var í hópnum 1994 og spilaði ekki leik. Fjórum árum síðar var hann frábær en langt frá sínu besta þegar Brassar töpuðu gegn Frökkum í úrslitaleik. Sýndi snilli sína þegar Brasilía vann mótið 2002 þar sem hann skoraði meðal annars tvö mörk í úrslitaleiknum. Í Þýskalandi fjórum árum síðar náði hann markafjölda sínum á HM upp í fimmtán.
2. Diego Maradona, Argentína, heimsmeistari 1986 - Spilaði fyrst á HM 1982 en sýningin var fjórum árum síðar. Besta einstaklingframmistaða sem sést hefur á HM kom frá Maradona 1986. Mörkin hans tvö gegn Englandi gleymast aldrei. Maradona tapaði úrslitaleik HM 1990 og 1994 var hann sendur heim eftir lyfjahneyksli.
1. Pele, Brasilía, heimsmeistari 1958, 1962 og 1970 - Sá eini sem hefur þrívegis unnið HM. Skaust 17 ára fram á sjónvarsviðið 1958 þegar hann skoraði þrennu gegn Frökkum í undanúrslitum og tvö gegn Svíum í úrslitum. Var hluti af liðinu sem vann fjórum árum síðar en spilaði ekki mikið vegna meiðsla. Var í banastuði 1970 og skoraði eitt og lagði upp tvö í 4-1 sigri á Ítalíu í úrslitaleik.



