Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fim 11. júní 2026 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Yfirgefur West Ham eftir aðeins sex mánuði
Mynd: EPA
Adama Traore hefur yfirgefið West Ham eftir aðeins sex mánuði hjá félaginu.

Þessi þrítugi Spánverji gekk til liðs við félagið frá Fulham í janúar en lengd samningsins var aldrei opinberuð.

Þá hefur félagið einnig tilkynnt að pólski markvörðurinn Lukasz Fabianski hafi yfirgefið félagið eftir átta ára dvöl. Hann er 41 árs gamall.

West Ham spilar í Championship deildinni á næstu leiktíð eftir að liðið féll úr úrvalsdeildinni á liðinni leiktíð.
Slapp
banner
banner