Fotbolti.net
11.07.20 - 22:40
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Ítalía: Ronaldo skoraði úr tveimur vítum í jafntefli

Cristiano Ronaldo skoraði bæði mörk Juventus

Cristiano Ronaldo skoraði bæði mörk Juventus

Canon

Mynd: Getty Images

<b>Juventus 2 - 2 Atalanta</b>
0-1 Duvan Zapata ('16 )
1-1 Cristiano Ronaldo ('55 , víti)
1-2 Ruslan Malinovskiy ('80 )
2-2 Cristiano Ronaldo ('90 , víti)
Juventus og Atalanta skildu jöfn, 2-2, í lokaleik dagsins í Seríu A á Ítalíu. Cristiano Ronaldo skoraði tvívegis í leiknum.

Kólumbíski framherjinn Duvan Zapata kom Atalanta yfir á 16. mínútu og leiddi liðið í hálfleik. Cristiano Ronaldo jafnaði leikinn með marki úr vítaspyrnu á 55. mínútu.

Ruslan Malinovskiy kom Atalanta aftur yfir á 80. mínútu. Það leit út fyrir að Atalanta myndi hafa sigur en Juventus fékk aðra vítaspyrnu undir lokin og skoraði Ronaldo aftur úr spyrnunni.

Magnað tímabil hjá honum og Juventus með 76 stig í efsta sæti, átta stigum meira en Lazio sem er í öðru sæti. Atalanta er í 3. sæti með 67 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.