Það eru tveir leikir spilaðir í Pepsi Max-deild kvenna í dag en leikið er fyrr um daginn fyrir úrslitaleik EM sem fer fram 19:00.
Þór/KA og ÍBV eigast við í fyrri leiknum klukkan 14:00 en þessi lið eru um miðja deild eftir fyrstu níu umferðirnar.
ÍBV er í sjötta sætinu með 12 stig en sæti neðar sitja stelpurnar frá Akureyri og eru með 11 stig.
Þróttur Reykjavík tekur svo á móti botnliði Tindastóls í kjölfarið en sú viðureign hefst klukkan 16:00 á Eimskipsvellinum.
Einnig er leikið í 4. deild karla og 2. deild kvenna en dagskrána má sjá hér fyrir neðan.
sunnudagur 11. júlí
Pepsi-Max deild kvenna
14:00 Þór/KA-ÍBV (SaltPay-völlurinn)
16:00 Þróttur R.-Tindastóll (Eimskipsvöllurinn)
2. deild kvenna
16:00 Sindri-ÍR (Sindravellir)
4. deild karla - C-riðill
14:00 Reynir H-KÁ (Ólafsvíkurvöllur)
Athugasemdir