Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 11. ágúst 2020 10:00
Elvar Geir Magnússon
Immobile hyggst ljúka ferlinum hjá Lazio
Ciro immobile, markahrókur Lazio.
Ciro immobile, markahrókur Lazio.
Mynd: Getty Images
Ciro Immobile sóknarmaður Lazio segist hafa hug á að klára feril sinn hjá félaginu. Hann hyggst skrifa undir nýjan samning til 2025 eða þar til hann verður 35 ára.

Immobile raðaði inn mörkum á liðnu tímabili og jafnaði markamet Gonzalo Higuain í ítölsku A-deildinni með því að skora 36 mörk.

Hann er frá Napoli og hefur verið orðaður við félagið en er ekki að hugsa sér til hreyfings.

„Ég ætla ekki að yfirgefa Lazio. Napoli er borgin þar sem ég fæddist en það sem Lazio hefur gefið mér verður ekki metið til fjár," segir Immobile.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner