Fotbolti.net
11.10.23 - 17:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Kolbeinn: Vonandi kemst þetta í vana bráðum

Auglýsing
Á landsliðsæfingu.

Á landsliðsæfingu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Netgíró
„Nei ekki ennþá, þetta er bara annað verkefnið mitt þannig þetta er ennþá nýtt, gaman og spennandi. Vonandi kemst þetta í vana bráðum," sagði Kolbeinn Birgir Finnsson við Fótbolta.net í dag. Kolbeinn ræddi við fjölmiðla á hóteli íslenska landsliðsins.
„Það er alltaf fiðringur og spenna að koma inn í landsliðið og vera í þessum hóp. Virkilega gaman."

Fyrsti keppnisleikur Kolbeins með landsliðinu var gegn Lúxemborg í síðasta landsleikjaglugga. Sá leikur fór illa. Næsti leikur er gegn Lúxemborg á Laugardalsvelli á föstudag. Er hefnd efst í huga?

„Mér líður þannig og ég held að við séum allir sammála því að við ætlum að hefna fyrir síðasta leik, það var ekki nógu gott. Við viljum koma hérna á Laugardalsvöll, taka þrjú stig og hefna fyrir síðasta leik."

Þremur dögum síðar sigraði Ísland Bosníu á Laugardalsvelli. „Það var virkilega gott og ég fann milli leikjanna að við vorum alveg klárir í að rífa okkur í gang og svara fyrir leikinn í Lúxemborg. Við gerðum það, vorum aðeins þéttari til baka, fórum aðeins í grunngildin og náðum að skora í lokin. Það var virkilega fallegt."

Veðrið á ekki að vera frábært á föstudaginn, hentar það íslenska liðinu betur?

„Ég held það, við erum vanir þessu. Í Lúxemborg spiluðum við í 30 gráðum og það hentaði þeim betur, núna ætlum við að nýta okkur íslenska veðrið og íslensku geðveikina og vinna þennan leik."

Sé þetta daglega í Lyngby
Gylfi Þór Sigurðsson er samherji Kolbeins hjá Lyngby. En hvernig er að fá hann inn á landsliðsæfingar?

„Hann er ennþá ótrúlega góður og 'fit'. Maður er ekki að sjá neitt nýtt, sé þetta daglega á æfingum í Lyngby líka. Hann er ógeðslega góður og með 'presence' hér í landsliðinu. Það er gaman að hann sé mættur."

„Ég er mjög spenntur að sjá hann spila ennþá meira í Lyngby og komast ennþá meiri takt."


'One off' leikur
Talandi um Lyngby, síðasta leikur endaði með 5-0 tapi í Silkeborg. Hvað er hægt að segja?

„Ég hugsa að þetta sé bara 'one off'. Ég veit hvað í okkur býr og þetta var 'off' dagur. Þrjú mörk á átta mínútum, svona á ekki að gerast, en ég hef engar áhyggjur, mætum í næsta leik og rífum okkur í gang."

„Ég hef ekki persónulega talað við Stefán (Teit Þórðarson sem skoraði þrennu í leiknum) eftir þetta, en auðvitað flott hjá honum, má eiga það að hann gerir þetta ógeðslega vel."
Mjög spenntur að sjá hann spila ennþá meira í Lyngby og komast ennþá meiri takt

Mjög spenntur að sjá hann spila ennþá meira í Lyngby og komast ennþá meiri takt

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Núna ætlum við að nýta okkur íslenska veðrið og íslensku geðveikina og vinna þennan leik

Núna ætlum við að nýta okkur íslenska veðrið og íslensku geðveikina og vinna þennan leik

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.