Watkins orðaður við United - Bayern sýnir Díaz áhuga - Arsenal hefur rætt við Eze
   mán 11. nóvember 2019 15:30
Magnús Már Einarsson
Manchester United ætlar ekki að reyna við Zlatan
Sky segir ekkert til í fréttum þess efnis að Manchester United ætli að reyna að krækja í Zlatan Ibrahimovic í janúar.

Hinn 38 ára gamli Zlatan er á förum frá LA Galaxy og ætlar að finna nýtt félag í janúar.

Í slúðurpakka dagsins var orðrómur um að Zlatan myndi snúa aftur á Old Trafford í janúar.

Zlatan skoraði 29 mörk á tveimur árum hjá Manchester United á sínum tíma.

Svíinn hefur verið sterklega orðaður við AC Milan að undanförnu en hann spilaði þar frá 2010 til 2012.
Athugasemdir