mið 11. nóvember 2020 08:00
Aksentije Milisic
Carragher: Man Utd á að selja óagaðan Pogba
Mynd: Getty Images
Jamie Carragher segir að ekki sé hægt að bera Paul Pogba saman við leikmenn eins og Steven Gerrard, Frank Lampard og Yaya Toure og að Man Utd eigi að selja þessa „óagaða" stjörnu.

Pogba hefur átt í vandræðum á þessu tímabili og ekki þótt spila vel. Hann hefur lengi verið orðaður burt frá United og segir Carragher að félagið ætti að selja hann við fyrsta tækifæri.

Pogba hefur byrjað síðustu tvo leiki á bekknum en hann gerði sig sekan um slæm mistök sem kostuðu tap gegn Arsenal þar á undan.

„Myndi ég velja hann í United liðiði núna? Nei. Hann er stórt nafn, kom fyrir mikinn pening en ég held að hann sé ekki frábær leikmaður," sagði Carragher.

„Fólk segir að hann hafi unnið HM og ég skil það. En þegar hann kom, þá hélt ég að hann myndi hafa sömu áhrif á United og Lampard hafði á Chelsea, Gerrad á Liverpool og Toure á City. Þessir leikmenn unnu titla fyrir sín lið."

„Þetta hefur bara ekki gengið upp hjá honum. Liðið ætti að horfa fram veginn og selja Pogba."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner