Jose Mourinho og lærisveinar hans í Tottenham fengu topplið Liverpool í heimsókn í gær, niðurstaðan var 0-1 sigur gestanna.
Hinn 20 ára gamli Japhet Tanganga spilaði sinn fyrsta deildarleik fyrir Tottenham í gær og Mourinho var ánægður með frammistöðu kappans. Portúgalinn var spurður hvort hann ætlaði að versla í janúar.
„Það síðasta sem ég geri eftir svona frammistöðu er að tala um að fá nýja leikmenn, ég sýni þessum leikmönnum virðingu og fer ekki að tala um það núna."
„Við getum sagt að Tanganga sé nýr leikmaður, hann hafði aldrei spilað deildarleik fyrr en núna. Hann spilaði vel í dag (gær) og sannaði að hann getur spilað fyrir okkur."
„Ég held að Mane og Salah viti núna hver Tanganga, þeir vissu það ekki fyrir leikinn," sagði Mourinho.
Tottenham er í 8. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 30 stig.
Athugasemdir