Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 12. febrúar 2021 13:30
Magnús Már Einarsson
Alioski spenntur að mæta Pepe aftur
Ezgjan Alioski
Ezgjan Alioski
Mynd: Getty Images
Ezgjan Alioski, leikmaður Leeds, segist bíða spenntur eftir að mæta Nicolas Pepe í leiknum gegn Arsenal á sunnudag.

Pepe var rekinn af velli í leik liðanna fyrr á tímabilinu fyrir að skalla Alioski sem féll til jarðar með tilþrifum.

Alioski og Pepe höfðu átt í rifrildi áður en atvikið átti sér stað. Alioski er spenntur að mæta Pepe aftur á sunnudag.

„Vitið þið hvað hann sagði við mig í búningsklefanum um daginn?" sagði Patrick Bamford, framherji Leeds, um Alioski.

„Hann sagði: 'Ég get ekki beðið eftir sunnudeginum.' Ég spurði 'af hverju?' Hann sagði þá 'Ég er að fara að spila gegn félaga mínum Pepe aftur."
Athugasemdir
banner
banner