Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 12. febrúar 2021 08:45
Fótbolti.net
Frídeildin: Kayak & Lúxus!
Það er gott að hugsa um Fantasy í fallegu umhverfi
Það er gott að hugsa um Fantasy í fallegu umhverfi
Mynd: frídeildin
Leikvika 24 hefst í hádeginu á morgun með leik Leicester og Liverpool. Næstu umferðir í Fantasy verða mjög áhugaverðar en mikið verður um að lið eigi tvöfalda umferð, þ.e. að spila tvo leiki innan sömu umferðar. Því er mikið af stigum í pottinum fyrir sókndjarfa knattspyrnustjóra.


Frídeildin blæs sömuleiðis til sóknar og fer af stað með spennandi hraðmót sem hefst í leikviku 24 og stendur yfir til og með leikviku 30. Skráningarfrestur til að skrá sig í mótið er fram að leikviku 26.

Verðlaunin eru ekki af verri endanum en boðið verður upp á ævintýraferð í höfuðstað Suðurlands, Stokkseyri. Gistiheimilið Kvöldstjarnan býður upp á gistingu fyrir allt að sex manns í glæsilegum híbýlum sínum þar sem allt er til alls. Þá leggja Kayakferðir til glæsilegan vinning fyrir tvo í eina af sínum stórskemmtilegu ferðum. Hægt er að lesa meira um mótið hér.


Skrá sig í Frídeildina hér.




Athugasemdir
banner
banner
banner