Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
banner
   fim 12. maí 2022 19:32
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu mörkin: Arsenal í basli - Kane með tvö og Holding rekinn af velli
Harry Kane er kominn með tvö mörk
Harry Kane er kominn með tvö mörk
Mynd: EPA
Tottenham Hotspur er 2-0 yfir gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni en Harry Kane skoraði bæði mörk heimamanna. Enski varnarmaðurinn Rob Holding var þá rekinn af velli eftir rúman hálftíma.

Á 22. mínútu fékk Tottenham víti er Son Heung-Min lenti í samstuði við Cedric Soares og Holding inn í teig. Kane skoraði örugglega úr vítaspyrnunni.

Holding fékk síðan gult spjald á 26. mínútu og sjö mínútum síðar var hann rekinn af velli.

Heimamenn áttu langa sendingu fram völlinn og var Son Heung-Min að undirbúa hlaup inn fyrir en þá mætti Holding honum af krafti og rak olnbogann í hann. Rautt spjald og ekki yfir neinu að kvarta.

Kane var svo að tvöfalda forystuna og því langur síðari hálfleikur framundan hjá Arsenal en ef þetta endar svona verður aðeins eitt stig á milli liðanna þegar tvær umferðir eru eftir.

Sjáðu vítaspyrnudóminn og markið hjá Kane
Annað mark Kane
Rauða spjaldið á Holding
Athugasemdir
banner
banner
banner