Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 12. september 2021 19:42
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Sarri fékk rauða spjaldið eftir deilur við Saelemaekers
Maurizio Sarri fékk rauða spjaldið í látunum
Maurizio Sarri fékk rauða spjaldið í látunum
Mynd: EPA
Maurizio Sarri, þjálfari Lazio á Ítalíu, fékk rauða spjaldið eftir 2-0 tap liðsins gegn Milan í kvöld.

Rafael Leao og Zlatan Ibrahimovic skoruðu mörk Milan í leiknum en sænski framherjinn var með boltann undir lok leiksins áður en leikmenn Lazio herjuðu á hann.

Zlatan tók í hnakkann á Lucas Leiva og þá brutust út mikil læti. Sarri lenti í deilum við belgíska bakvörðinn Alexis Saelemaekers og fékk í kjölfarið rauða spjaldið.

Hægt er að sjá myndband af látunum hér fyrir neðan.



Sjáðu annað sjónarhorn frá atvikinu
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner