Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 12. október 2019 09:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sagt að Özil sé að reyna að selja húsið
Özil á æfingu hjá Arsenal.
Özil á æfingu hjá Arsenal.
Mynd: Getty Images
Fjölmiðlar í Tyrklandi segja að Mesut Özil sé að reyna að selja 10 milljón punda hús sitt í London.

Í sömu grein, frá Fotospor, er talað um það að Özil sé á leið til Fenerbache í Tyrklandi í janúar.

Þýski miðjumaðurinn er úti í kuldanum hjá Unai Emery, stjóra Arsenal þessa dagana en hann hefur ekki verið í leikmannahópnum í síðustu leikjum. Sagt er að hann sé ekki að leggja nægilega mikið á sig á æfingum.

Ray Parlour fyrrum, miðjumaður Arsenal, telur að ferli Özil hjá Arsenal, sé lokið.

Húsið sem hinn þrítugi Özil á að vera að reyna að selja er á þremur hæðum og er með sex svefnherbergi, bíósal, vínkjallara og margt fleira skemmtilegt sem þar má finna.
Athugasemdir
banner