Fotbolti.net
12.10.20 - 20:22
Victor Pálsson
Ítalski boltinn

Lukaku: Getum unnið titla með Conte

Lukaku: Getum unnið titla með Conte
Canon

Mynd: Getty Images

Romelu Lukaku, leikmaður Inter Milan, hefur trú á að félagið geti unnið titla undir stjórn Antionio Conte sem tók við fyrir síðustu leiktíð.
Conte er einn allra besti þjálfari Ítalíu en hann var hjá Chelsea áður en hann tók við Inter og vann þar enska meistaratitilinn.

Lukaku hefur sjálfur staðið sig mjög vel á Ítalíu en síðustu níu ár hefur Juventus unnið deildarmeistaratitilinn þar í landi.

„Ég hef bætt alla mína eiginleika undir Conte. Ef þú vilt spila fyrir hann þá þarftu að fórna þér fyrir liðið," sagði Lukaku.

„Þú þarft að vera á toppnum bæði andlega og líkamlega og þá geturðu fyrst fundið fyrir þínu besta á vellinum."

„Markmið mitt sem fótboltamaður er að vinna titla og ég get gert það með honum. Ég gef allt í verkefnið bæði á æfingum og í leikjum. Þið sjáið úrslitin. Við þurfum að halda áfram og bæta sigurviljann í liðinu."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.