Fotbolti.net
12.10.21 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Áhugavert sjónarhorn af marki Berglindar og magnaðar myndir

Berglind fagnar marki með íslenska landsliðinu.

Berglind fagnar marki með íslenska landsliðinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Landsliðskonan Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði sitt fyrsta mark fyrir Hammarby er liðið vann erkifjendur sína í AIK síðastliðinn sunnudag.
Það var sett áhorfendamet á leiknum; það mættu 18,537 manns á leikinn.

Berglind skoraði þriðja mark Hammarby á mikilvægum tímapunkti, stuttu eftir að AIK minnkaði muninn í 2-1.

Hammarby vann leikinn að lokum 4-1, frábær sigur. Berglind spilaði 80 mínútur og Hallbera Guðný Gísladóttir lék allan leikinn fyrir AIK, sem er í næst neðsta sæti deildarinnar. Hammarby situr í fimmta sætinu.

Hægt er að sjá hér að neðan skemmtilegt sjónarhorn af marki Berglindar og magnaðar myndir sem voru teknar eftir leik.

Smelltu hér til að sjá myndband af marki Berglindar í upprunalega sjónarhorninu.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.