Fotbolti.net
12.10.21 - 23:32
Brynjar Ingi Erluson

Kwame Quee heitur fyrir bikarúrslitin - Bar fyrirliðabandið og skoraði

Kwame Quee

Kwame Quee

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kwame Quee, leikmaður Víkings, bar fyrirliðabandið og skoraði í 2-1 tapi Síerra Leóne gegn Marokkó í vináttuleik í dag og mætir því í góðum gír í bikarúrslitin gegn Skagamönnum næstu helgi.
Kwame hefur spilað með landsliði Síerra Leóne frá 2014 en hann bar fyrirliðabandið í fyrsta sinn gegn Marokkó í dag.

Marokkó komst yfir með marki í fyrri hálfleik en eftir klukkutímaleik þá jafnaði Kwame metin. Markvörðurinn varði frá framherja Síerra Leóne og datt boltinn fyrir Kwame sem var einn gegn opnu marki og skoraði.

Síerra Leóne spilaði þrjá vináttuleiki í þessum glugga en liðið undirbýr sig af kappi fyrir Afríkumótið sem fer fram eftir áramót.

Kwame flýgur nú heim til Íslands og undirbýr sig fyrir bikarúrslitaleikinn gegn ÍA sem fer fram á Laugardalsvelli á laugardag.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.