Búið er að skoða ökklameiðsli Mohamed Salah og hefur verið ákvörðun tekin um að hann fái hvíld í landsleikjahlénu. Frá þessu greinir Liverpool Echo.
                
                
                                    Hann mun því ekki taka þátt í landsleikjum Egyptalands gegn Keníu og Kómoreyjum í undankeppni Afríkumótsins.
Salah meiddist á ökkla eftir tæklingu frá Hamza Choudhury í 2-1 sigri gegn Leicester City. Meiðslin versnuðu í 3-1 sigri gegn Manchester City um helgina eftir að Fernandinho tæklaði hann í fyrri hálfleik.
Hann er því tæpur fyrir næsta leik Liverpool sem er á útivelli gegn Crystal Palace.
Aðrir enskir fjölmiðlar greina þó frá því að samkvæmt þeirra heimildum sé Salah ekki búinn að gangast undir frekari skoðun á ökklanum.
Athugasemdir
                                                                
                                                        
 
         
                    
        
         
                        
        
         
                                                                        
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                            
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                    
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                        
                        
        
         
                

