Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 13. janúar 2020 18:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrrum Pepsi-deildar leikmaður valinn maður leiksins gegn Rússum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viggó Kristjánsson er einn af 'Strákunum Okkar', karlalandsliðinu í handbolta. Viggó var valinn maður leiksins í dag þegar Ísland sigraði Rússland örugglega í öðrum leik landsliðsins á EM.

Leikið var í Malmö og Viggó skoraði fjögur mörk úr fimm skotum, stóð vel fyrir sínu í dag.

Viggó lék á sínum tíma tólf leiki í Pepsi-deild karla árið 2013. Þá var hann á mála hjá Breiðabliki.

Hann lék einnig með Gróttu í 1.- og 2. deild og ÍR í 1. deild á ferli sínum í fótbolta. Viggó lék sína siðustu leiki árið 2014 með Gróttu.


Athugasemdir
banner
banner