Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 13. janúar 2021 17:41
Aksentije Milisic
Ítalski bikarinn: Lukaku skaut Inter í 8-liða úrslit
Mynd: Getty Images
Fiorentina 1 - 2 Inter
0-1 Arturo Vidal ('40 , víti)
1-1 Christian Kouame ('57 )
1-2 Romelu Lukaku ('119 )

Inter heimsótti Fiorentina í 16-liða úrslitum ítalska bikarsins í dag og úr varð hörku leikurinn.

Arturo Vidal kom Inter yfir undir lok fyrri hálfleiks en markið gerði hann úr vítarspyrnu. Romelu Lukaku kom inn á í síðari hálfleik og því tók Vidal spyrnuna.

Heimamenn frá Flórens jöfnuðu metin um miðjan síðari hálfleik og var þar Christian Kouame að verki. Meira var ekki skorað eftir venjulegan leiktíma og því þurfti að framlengja leikinn.

Allt stefndi í vítaspyrnukeppni en þá ákvað Romelu Lukaku að stíga upp í liði Inter eins og svo oft áður. Hann skoraði á 119. mínútu leiksins og skaut liðinu áfram í 8 liða úrslit.

Antonio Conte, þjálfari Inter, sagði í viðtali eftir leikinn að liðið hafi farið verðskuldað áfram og hafi átt að klára leikinn eftir venjulegan leiktíma.

Liðið mætir grönnum sínum í AC Milan í næstu umferð.
Athugasemdir
banner