Norski miðjumaðurinn Martin Ödegaard er leikmaður mánaðarsins í ensku úrvalsdeildinni.
Hann var verðlaunaður fyrir frammistöðu sína í nóvember og desember með Arsenal.
Ödegaard hefur verið frábær í liði Arsenal sem situr á toppi deildarinnar þegar mótið er rétt tæplega hálfnað.
Sjá einnig:
„Er hann ekki topp fimm í deildinni? Ég myndi halda það"
Arsenal vann tvöfalt því Mikel Arteta er líka stjóri mánaðarins fyrir nóvember og desember. Arsenal vann alla deildarleiki sína á þessum tíma en ástæðan fyrir því að þessir tveir mánuðir eru teknir saman er sú að HM í Katar fór fram á þessum tíma og var því lítið spilað í ensku úrvalsdeildinni. Alls fóru fjórir leikir fram á þessum tíma.
Athugasemdir