Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fim 13. febrúar 2020 13:03
Elvar Geir Magnússon
Kvennalandsliðið - Natasha og Berglind Rós til Spánar
Icelandair
Natasha Anasi fékk nýlega íslenskan ríkisborgararétt.
Natasha Anasi fékk nýlega íslenskan ríkisborgararétt.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Þór Hauksson landsliðsþjálfari.
Jón Þór Hauksson landsliðsþjálfari.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
A-landsliðshópur kvenna var tilkynntur í dag en liðið tekur þátt í móti á Pinatar í mars ásamt Skotlandi, Norður Írlandi og Úkraínu.

Meðal leikmanna í hópnum er varnarmaðurinn Natasha Anasi úr Keflavík sem nýlega fékk íslenskan ríkisborgararétt.

Berglind Rós Ágústsdóttir úr Fylki er einnig í hópnum en hún hefur verið besti leikmaður Árbæjarliðsins undanfarin ár.

Undanfarin ár hefur liðið tekur þátt í Algarve Cup á sama tíma, en í ár er það mót minna í sniðum og fékk liðið því ekki sæti þar.

Ísland mætir Norður Írlandi 4. mars, Skotlandi 7. mars og Úkraínu 10. mars.

Mótið er liður í undirbúningi liðsins fyrir tvo mikilvæga leiki í undankeppni EM 2021 í apríl. Þá mætir Ísland Slóvakíu og Ungverjalandi, en báðir leikirnir fara fram ytra.

Sandra Sigurðardóttir | 27 leikir
Cecilía Rán Rúnarsdóttir
Ingibjörg Valgeirsdóttir
Hallbera Guðný Gísladóttir | 109 leikir
Glódís Perla Viggósdóttir | 81 leikur, 6 mörk
Berglind Rós Ágústsdóttir
Ingibjörg Sigurðardóttir | 27 leikir
Guðný Árnadóttir | 5 leikir
Anna Rakel Pétursdóttir | 6 leikir
Natasha Anasi
Elísa Viðarsdóttir | 36 leikir
Sara Björk Gunnarsdóttir | 129 leikir, 20 mörk
Dagný Brynjarsdóttir | 85 leikir, 25 mörk
Alexandra Jóhannsdóttir | 5 leikir, 1 mark
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir | 68 leikir, 9 mörk
Rakel Hönnudóttir | 100 leikir, 9 mörk
Sigríður Lára Garðarsdóttir | 18 leikir
Agla María Albertsdóttir | 27 leikir, 2 mörk
Fanndís Friðriksdóttir | 106 leikir, 17 mörk
Berglind Björg Þorvaldsdóttir | 44 leikir, 4 mörk
Elín Metta Jensen | 46 leikir, 14 mörk
Hlín Eiríksdóttir | 12 leikir, 3 mörk
Svava Rós Guðmundsdóttir | 19 leikir, 1 mark



Athugasemdir
banner
banner
banner